söknuður

Þegar ég var yngri fannst mér sem heimurinn væri minn. Ég átti sterka fjölskyldu, ekki stóra en hún var sko sterk. Við áttum ekkert allt, en okkur skorti ekkert.

Svo varð ég eldri og gekk oft ill að fóta mig í lífinu. Átti mörg feilspor og geri sum þeirra enn.. En einhvern vegin þrátt fyrir allt voru tvær manneskjur sem elskuðu mig skilyrðislaust. Ég svo sannarlega særði þau eins og alla aðra, en ég átti alltaf heimili hjá þeim. Alltaf tekið á móti mér með opinn arm og hlý orð.

Í gegnum allt þetta basl á mér vaknaði ég oft upp með hnút í maganum og skömm og ótti voru tilfinningar sem voru sterkari en ég get lýst með orðum. En það var samt eitt sem ég gat alltaf haldið föstum höndum um. Ég átti þau að. Hjá þeim gat ég kúrt og einhvern vegin komist að því aftur hver ég er. Munað að ég væri ekki slæm manneskja, munað að ég ætti fólk að.

Í haust fór afi, ég er enn með brotið hjarta þess vegna og hef ekki getað hugsað til hans án þess að tárast og verða hrædd. -Amma mín er núna komin til hans. Ég hef varla grátið, er dofin.

Ég hef sjaldan liðið jafn ein, ég á alveg fólk að. Fólk sem ég elska og elskar mig. En þau voru mér eitthvað annað og meira, eitthvað sem ég get ekki alveg útskýrt. Eitthvað sem engin orð eru til yfir. Bara myndir og tilfinningar. Endalausar myndir sem ég get sótt, bankað á gluggann hennar ömmu og grátið þegar enginn annar mátti sjá mig brotna, skriðið í kopp og orðið lítil.. eitthvað sem ég gat bara hjá þeim.

Það að vera að standa í lappirnar án þeirra gerir mig sorgmædda og hrikalega hrædda, það að eiga ekki fortíð sem ég get verið stolt af með þeim brýtur hjartað í mér. Það að hafa verið elskuð skilyrðislaust af þeim var mér dýrmætara en flest.

Ég á eftir að sakna þeirra á hverjum degi. Ég væri eflaust löngu farin sjálf ef ég hefði ekki átt þau að. Þau minntu mig á allt hitt sem ég hef til að lifa fyrir...

Líf án þeirra finnst mér eins og eigi ekki að vera hægt, en það kemur alltaf nýr dagur og ferðin verður að halda áfram.

kv. stóri labbi


www.kannabis.net

Þar má finna grein eftir mig sem birt var í dag

Nú er ég farinn

Læt mig hverfa í einhvern smá tíma.. ætla að vera á náttfötunum, hlaða batteríin og koma tvíefld til baka... 

 nauðsynlegt að hugsa líka um sjálfan sig til að maður geti gert gagn í byltingunni...  Ninja

  þar til næst

yfirogút


hjúkket

löggan stendur sig í því að uppræta þessa stórhættulegu plöntu, verst að alvöru glæpamenn fá frið á meðan
mbl.is Sex handtekin vegna fíkniefnamáls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svona mundi aldrei gerast hér á landi!!

Eða hvað?

 

Merkilegt hvað fólk á það til að trúa engu slæmu upp á lögregluna!


mbl.is Lögreglumenn réðust á 15 ára stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég lifi í ótta en ekki í kærleika!

Ég var slegin með blautri tusku áðan!  Þar sem ég er töffari, missi nánast aldrei kúlið, nema að það sé kúl á því momenti þá var einstaklega erfitt fyrir mig að heyra þetta!

 Það sem var sagt við mig er að ég lifi í ótta en ekki í kærleika.  Allt í einu varð það svo ljóslifandi fyrir mér hvað ég er hrædd.

Við hvað ég er hrædd veit ég ekki, kannski bara allt.  Ég er hrædd um að ég sé búin að klúðra því sem skiptir máli.  Hrædd um að það sé of seint.  Hrædd við mig.  Hrædd við álit annarra.  Hrædd um að mistakast.  Hrædd um að vera ekki töffari.

Ég er  að fara í burtu í 10 daga eða svo fljótlega.  Þá daga ætla ég að nota til að finna óttann minn og stíga í hann.  Þannig góða fólk ef gvuð lofar þá er töffarinn að hverfa á braut!  Hvað ég kem til með að verða veit ég ekki.  Vonandi bara skrefinu nær því að vera ég sjálf.  Skrefinu nær því að þekkja mig betur. Skrefinu nær því að þora!

Ég ætla alla vega að berjast fyrir því að deyja ekki úr ótta, það er víst!

úff...

 


Barnaníðingar virðast fá friðhelgi hjá dómstólum !?!?!

Þótt fyrr hefði verið þá er hópur fólks sem ætlar að mæta fyrir framan Alþingishúsið næstu helgi og krefjast þess að refsingar verði þyngdar í kynferðisbrotamálum sem snúa að börnum. Hér á landi hefur það verið í tísku að senda þá inn í nokkra mánuði þrátt fyrir ítrekuð brot og augljósan brotavilja...

Við höfum flest setið við eldhúsborðið heima hjá okkur og kvabbað yfir þessu, hrisst hausinn og verið sammála um að þetta er óskiljanlegt...

Ég hef meira að segja heyrt fólk halda því fram að dómarastéttinn hljóti að vera svona sýkt af þessum viðbjóði sjálf þannig að þeir vilji ekki dæma hart ... en ég hef ekkert fyrir mér í því ... annað en ótrúlegan skilning dómara og mild viðhorf þeirra til þessara manna... Hlutfall mála sem fara fyrir dóm eru fáránlega lágt og kerfið okkar virðist virða rétt þessara manna meira en barnanna

VIÐBJÓÐUR

MÆTUM ÖLL ÞVÍ VIÐ HÖFUM SÉÐ HVAÐ MÓTMÆLI GETA GERT!!


Er kannski komið nóg?

Í síðustu viku var hópur fólks sem sá ástæðu til að fara út í kuldann eldsnemma og mótmæla setu Davíðs Oddsonar í Seðlabanka Íslands. Þar á meðal var maður sem einn sem hefur verið virkur mótmælandi í smá tíma hér á landi.

(Á mótmælunum fyrir frama Alþingishús notaðist hann við lúðra tengda við stóra kúta. Þetta apparat var alveg látið vera af lögreglumönnum á meðan á því stóð)

En þegar það var Davíð sem þurftu að hlusta þessa tóna þá er allt í einu tekið upp á því að gera athugasemdir við apparatið Því lögreglan fékk skipun frá aðalvarðstjóra um að handtaka manninn. Á stöðinni var honum skýrt frá því að þetta apparat væri á skilorði og yrði gert upptækt mundi það sjást aftur.

Burt séð frá því hvort að fólk styður ákveðin mótmæli eða ekki hljótum við að geta verið sammála um að mótmæli eiga rétt á sér. Þessi mótmæli voru utandyra, friðsöm og engar skemmdir unnar.

Hópur fólks varð mjög hneykslað á þessari valdbeitingu hjá lögreglunni og ákveðið var að setja af stað "hávaðamótmæli". Að því stóðu m.a. www.oskra.org sem er félagsskapur róttækra stúdenta (iðjuleysingar og dópistar??)

Fólk var kvatt til að koma með eldivið og hávaðatól.

Lögreglumennirnir voru vægast sagt heitt í hamsi þegar þeir mættu. Mótmælendur fengu strax mjög ákveðnar móttökur frá þeim og margir þeirra lágu eftir á jörðinni, þar á meðal ung stúlka á hækjum.

Lögreglan fannst hún tilneydd til að draga fullkomnlega löglega lagt bíl í burtu sem var skráður á einn mótmælandann. Þegar hann fer upp á stöð til að inna eftir bílnum er hann handtekin, látin gista í fangageymslunni og ekki sleppt fyrr en að ganga tvö í dag. Bíllinn hans er mikið skemmdur eftir dráttabílinn.

Önnur handtaka var þegar af einn af lögreglumönnnunum fannst einhver ástæða til að rífa I-Pod af einum mótmælandanna. Hluti hópsins labbar að lögreglubílnum og biður kurteisislega um að fá tækið afhent. Viðbrögð lögreglu voru vægast sagt gróf og í kjölfarið myndast reiði í hópnum, fúkyrði látin fjúka og sungið saman. Á þessum tímapunkti er önnur handtaka þar sem ungum manni er skellt af alefli í jörðina, lögreglumaður með hné í bakið á honum og bara virkilega ljótt að sjá.

Hann sat líka inni fram eftir hádegi eða ég veit ekki betur.

Það voru einhverjir þarna að drekka bjór, sá engan sýnilega ölvaðan..

Ég trúi því að það sé ekki komið nóg, ég trúi því að ef við hættum núna, setjumst og verði stillt þá gerist voða lítið í átt að breytingum.

Jújú Ríkisstjórnin féll, en það er bara eitt skref. Hálf Ríkisstjórn situr þar enn og hefur sagt fullt af flottum hlutum en ég vil sjá framkvæmd.

Ég hef verið að lesa mér mikið til um störf Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) og verð að segja að ég er hrædd. Hrædd um að orkan okkar, Landsvirkjun og jafnvel vatnið verði einkavætt. Hrædd við einkavæðingu á heilbrigðiskerfinu og svo ótal margt annað sem hefur verið einkennandi fyrir störf þeirra. Kynnið ykkur málið áður en þið farið að rífast við mig, ég er ekkert að reyna að troða þessu upp á ykkur

En ég alveg eins og þið má berjast fyrir því sem ég trúi á, ég hef aldrei skaðað neinn á mótmælum, bara brennt rusl og ónýt jólatré...

Mér finnst líka ótrúlega leiðinlegt hvernig fjölmiðlar segja frá. Fréttaflutningur er sérstaklega skrítin hvað þetta mál varðar þar sem hvergi er sagt frá því afhverju við værum þarna... Takið öllu með varúð sem þið lesið í fréttum. Ekki vera svona fljót á ykkur að dæma fólk glæpamenn og fíkniefnasjúklinga... Það eru stór orð. Það að vera "iðjuleysingi" í dag er hugarfar sem við þurfum að breyta. Það er engin skömm í því að vera atvinnulaus eins og landið okkar er í dag. Það eru alltof margir í þeirri stöðu


mbl.is Bál kveikt á Lækjartorgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HELVÍTIS FOKKING FOKK

Hvað er eignlega með þennan mann? Er hann ekki að sjá að það vilja hann allir út nema einhverjar örfáar hræður í grátkórnum hans! Hann er ótrúlegur!! Hefði haldið að hann hefði snefil af sjálfsvirðingu og gengið út. EN nei gvuð er góður og heldur enn glugganum opnum fyrir mig... draumurinn minn gæti ræst.. ég fæ kannski bara eftir allt saman að dragann út á hárinu

MÆTUM KL 8 Á MORGUN OG TROMMUM FÍFLIÐ ÚT


mbl.is Davíð segir ekki af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Halló!!!!

Er ekki alveg í lagi með fólk eða ???

Hann reykti fokking gras! SO??? Kate Moss hefur ítrekað verið spottuð að nota kókaín og varla neinn sem sagði upp samning við hana...

Manngreyið hefur æft stíft alla sína ævi, slakar á og fær sér í haus og það er blásið upp...

finnst það asnalegt svo vægt sé til orða tekið...

Er ég eitthvað skrítin að finnast þetta ekki vera stórmál...???


mbl.is Kelloggs sagði upp samningnum við Phelps
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband